Sindri verður áhættu- og fjárstýringarstjóri

Sindri Sveinsson er nýráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri hjá Kópavogsbæ.
Sindri Sveinsson er nýráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri hjá Kópavogsbæ.

Sindri Sveinsson hefur verið ráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri hjá Kópavogsbæ og var valinn úr hópi tólf umsækjenda.

Sindri hefur starfað hjá Kópavogsbæ frá árinu 2009. Hann hefur frá 1.mars síðastliðnum gegnt starfi deildarstjóra greiningardeildar á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar en var áður rekstrarstjóri menntasviðs Kópavogsbæjar.

„Það er mér mikill heiður að taka við nýju starfi áhættu- og fjárstýringarstjóra Kópavogsbæjar. Traustur rekstur og ábyrg fjármálastjórnun eru gríðarlega mikilvægar áherslur í stóru sveitarfélagi. Ég hlakka því til að takast á við spennandi verkefni og þær áskoranir sem bíða í samstarfi við öflugan hóp starfsmanna á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar.“ segir Sindri.

“Kópavogsbær er stækkandi sveitarfélag í fremstu röð. Nú sem fyrr verða áherslur á ábyrga fjármálastjórn enda forsenda þess að unnt sé að veita framúrskarandi þjónustu til bæjarbúa. Sindri hefur mikla þekkingu á rekstri sveitarfélagsins. Sú reynsla, ofan á farsælan bakgrunn í áhættu- og fjárstýringu og ekki síst upplýsingamiðlun þeirra gagna, mun reynast dýrmætt veganesti fyrir þá vegferð sem Kópavogsbær er á.” segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Í starfi sínu sem rekstrarstjóri hefur Sindri meðal annars annast gerð fjárhagsáætlunar, sinnt rekstrareftirliti, frávikagreiningu sem og ýmiss konar gagnagreiningu, ráðgjöf og upplýsingamiðlun.

Áður en Sindri hóf störf hjá Kópavogsbæ starfaði hann sem sérfræðingur á verðbréfasviði Landsbankans, þar sem hann vann að greiningum fjárfestingatækifæra á innlendum og erlendum mörkuðum og fjárfestingum í hlutabréfum.

Sindri Sveinsson er viðskiptafræðingur með sérhæfingu í fjármálum. Hann lauk M.Sc. gráðu í fjármálum árið 2005 frá viðskiptaháskólanum í Lundi í Svíþjóð, auk þess sem hann hefur B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig sótt sér frekari þekkingu á sviði kerfisfræði, upplýsingatækni og gagnavinnslu, meðal annars í gegnum námskeið hjá HR og Háskóla Íslands, auk símenntunar í notkun Power BI og greiningartækni.