Skáksnillingar í Álfhólsskóla

Skáksnillingar í Álfhólsskóla
Skáksnillingar í Álfhólsskóla
Skáksveit Álfhólsskóla varð um helgina Norðurlandameistari barnaskólasveita á móti sem fór fram í Helsinki. Sveitin hlaut 15 af 20 vinningum. Í öðru sæti varð sveit Noregs og Danir náðu þriðja sætinu. Mótið var mjög spennandi og úrslit lágu ekki fyrir fyrr en í síðustu skákum síðustu umferðar. Álfhólsskóli gerði jafntefli 2-2 í 1. og 2. umferð mótsins við sveitir Noregs og Finnlands. Sveitin vann svo sveit Dana 3-1 í 3. umferð og vann loks bæði B sveit Finna og sveit Svía 4 -0 í umferðum 4 og 5.
Skáksveit Álfhólsskóla skipuðu:
 
1. borð: Dawid Kolka (4 vinninga af 5)
2. borð: Felix Steinþórsson (4.5 vinninga af 5)

3. borð: Guðmundur Agnar Bragason (3 vinninga af 5)
4. borð: Oddur Þór Unnsteinsson (3.5 vinningar af 5)

Halldór Atli Kristjánsson var varamaður. Liðsstjóri liðsins og þjálfari er Lenka Ptácníková WGM

Álfhólsskóli hefur á síðustu árum lagt mikla áherslu á að bjóða nemendum skólans upp á skákkennslu og uppsker nú ríkulega. Skáksveit skólans varð Íslandsmeistari barnaskólasveita sl. 2 ár og er nú Norðurlandsmeistari eftir að hafa lent í öðru sæti á mótsins á síðasta ári.

Að baki þessum árangri er þrotlaus vinna þeirra barna og ungmenna sem sveitina skipa auk þjálfara þeirra bæði hjá Álfhólsskóla, Skákskóla Íslands og þeirra taflfélaga sem þeir tilheyra auk annarra aðila sem leggja á sig mikið ósérhlífið starf til að styrkja skákina á Íslandi. Í sveit Álfhólsskóla er mikill og góður efniviður og það verða nú áframhaldandi hlutverk skólans og Skáksambands Íslands að vinna áfram úr þessum efnilega hópi.

Kópavogsbær óskar skáksveit Álfhólsskóla innilega til hamingju með glæsilegan sigur!