Skemmtileg dagskrá á 17. júní

Börnin nutu hátíðarinnar
Börnin nutu hátíðarinnar

Þjóðhátíðardegi Íslendingar, 17. júní, verður að venju fagnað með fjölbreyttri dagskrá í Kópavogi. Má þar nefna skrúðgöngu, skemmtiatriði á Rútstúni,  andlitsmálun, hoppukastala og handverksmarkað.  Í Gjábakka verður boðið upp á hátíðarkaffi og ljúfa tóna og við Gerðarsafn verða Skapandi sumarstörf með ýmsar uppákomur. Dagurinn endar svo með útitónleikum til kl. 22:00. 

Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Kópavogi hefst með hinu árlega 17. júní hlaupi fyrir börn í 1. -6. bekk við Kópavogsvöll og hefst það kl. 10:00. Sannkölluð fjölskyldustemning þar sem allir fá verðlaunapening.

Skrúðgangan leggur af stað frá Menntaskólanum í Kópavogi klukkan 13.30 og lýkur henni á Rútstúni en þar tekur við hátíðar- og skemmtidagskrá sem Jóhannes Haukur Jóhannesson stýrir. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs flytur ávarp, fjallkonan fer með ljóð og nýstúdent flytur hugleiðingar unga fólksins á þjóðhátíðardegi. Skólahljómsveit Kópavogs leikur ættjarðarlög undir fánaborg frá Skátafélaginu Kópum. Lína Langsokkur mætir á svæðið, Pollapönk tekur lagið og Gói og Gloría úr Stundini Okkar skemmta. SamSam systur, KK, Jón Jónsson og sigurvegari úr söngkeppni félagsmiðstöðvanna koma fram áður en Vignir, Hreimur og Benni enda dagskemmtunina.

Auk dagskrár á stóra sviðinu er ýmislegt annað til skemmtunar. Á Rútstúni verður stór handverksmarkaður og hoppukastalar, Götuleikhús Kópavogs skemmtir í skrúðgöngunni, Hjálparsveit Skáta í Kópavogi verður með búnaðarsýningu við enda Vallargerðisvallar, boðið verður upp á andlitsmálun og íþróttafélögin sjá um veitingasölu á svæðinu. Í ár verður líka dagskrá á túninu við Gerðarsafn þar sem  Skapandi sumarstörf verða með ýmsar uppákomur, Hestamannafélagið Sprettur teymir undir og þar verður einnig andlitsmálun og leiksvæði fyrir börnin.

Hátíðarkaffi hefst kl. 14.00 í félagsmiðstöðinni Gjábakka. Þar mun tónlistarmaðurinn KK koma fram auk atriða frá Skapandi sumarhópum Molans og kór frá vinabæ Kópavogs, Nörrköping í Svíþjóð.

Um kvöldið verða útitónleikar á Rútstúni. Þeir hefjast kl. 19.30 og standa til kl. 22:00.  Fram koma Vára, Emmsjé Gauti og Hr. Hnetusmör, 12:00, Kaleo og Jón Jónsson og Friðrik Dór.

Auglýsing 17. júní.