Skólasetning í grunnskólum

Við Hörðuvallaskóla, fjölmennasta skóla Kópavogs.
Við Hörðuvallaskóla, fjölmennasta skóla Kópavogs.

Tæplega 5.000 börn setjast á skólabekk í grunnskólum Kópavogs í vetur, þar af um 500 í fyrsta bekk. Skólarnir eru settir þriðjudaginn 22. ágúst, tímasetningar er að finna á vefsíðum grunnskólanna.

Hörðuvallaskóli er stærsti skólinn eins og undanfarin ár, en ríflega 900 nemendur verða í skólanum í vetur. Níu grunnskólar eru í Kópavogi: Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Snælandsskóli, Álfhólsskóli, Smáraskóli, Lindaskóli, Salaskóli, Hörðuvallaskóli og Vatnsendaskóli.

Bryddað er upp á þeirri nýbreytni í ár að ritföng nemenda eru keypt inn af skólum í samráði við foreldrafélög til þess að lækka ritfangakostnað.