Spennandi sumarnámskeið

Leikjanámskeið í Kópavogi.
Leikjanámskeið í Kópavogi.

Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára.

Námskeið á vegum frístunda- og íþróttadeildar verða meðal annars hjóla- og útivistarnámskeið, smíðavöllur, skapandi kvikmyndagerð og siglingarnámskeið. Sumarstarf í frístundaklúbbnum Hrafninum er fyrir börn og unglinga með sérþarfir og atvinnutengt frístundaúrræði verður fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 17 til 24 ára í starfs- og frístundaklúbbnum Tröð.

Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er vinnutengt unglinga - og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.

Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru námskeið í kvikmyndagerð, sumaræfingar í siglingum hjá siglingafélaginu ÝMI og listtengd námskeið á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. Auk þess er meira framboð af sumarnámskeiðum í ágúst á vegum íþróttafélaga í Kópavogi. Kvikmyndanámskeið verður einnig í boði í Bókasafni Kópavogs.

Undir hnappnum "önnur námskeið" er að finna ýmis sumarnámskeið á vegum íþróttafélaga í Kópavogi og annarra tómstunda- og félagasamtaka. Nánari upplýsingar um þau eru á heimasíðum þeirra ásamt upplýsingum um skráningarferli.