Söfnun birkifræja í Kópavogi

Söfnun birkifræja.
Söfnun birkifræja.

Skógræktarfélag Kópavogs í samstarfi við Kópavogsbæ efna til birkifrætínslu þriðjudaginn 4. október í Vatnsendahlíð kl. 17.30-19.00.

Safnast verður saman við fræðslusetrið á Leiðarenda 3 í Guðmundarlundi þar sem stutt fræðsla fer fram um hvernig staðið skal að söfnun og sáningu birkifræja. Að fræðslu lokinni verður gengið út í skóg, spölkorn frá fræðslusetrinu og fræi safnað.

Fyrir alla fjölskylduna

Söfnun birkifræja er skemmtilegt fjölskylduverkefni. Börn hafa mjög gaman af því að tína fræ. Þau skynja mikilvægi þessa verkefnis afskaplega vel og eru fljót að tileinka sér vinnubrögð. Að tína birkifræ er holl og góð útivera og hreyfing en mikilvægt er að meta veður og klæða sig eftir því.

Að lokinni frætínslu má annað hvort skilja fræin eftir hjá Skógræktarfélaginu eða skila þeim í fræsöfnunarkassa í Bónusverslunum og Olís-stöðvum. Þeim fræjum sem safnað er verður sáð í örfoka land víða um land, meðal annars í upplandi Kópavogs. Þá getur fólk líka tekið fræið sitt með sér heim og síðan valið eigin svæði til sáninga.

Með því að klæða örfoka landsvæði birkiskógi stöðvast kolefnislosun og binding hefst í staðinn. Átakið snýr að bæði loftslags- og umhverfisvernd og er liður í því að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti a.m.k. fjórðung landsins við landnám en þekur einungis 1,5% lands í dag. Markmið stjórnvalda er að birki vaxi á fimm prósentum landsins árið 2030. Það er í senn metnaðarfullt og mikilvægt starf að auka þekju birkiskóga og birkikjarrs í 5%. Það verður ekki auðvelt og því er mikilvægt að virkja sem flesta til þessa verkefnis.

Bakhjarlar verkefnisins eru Bónuss, Olís og Prentmet Oddi ásamt Skógræktinni og Landgræðslunni. Aðrir samstarfsaðilar eru Skógræktarfélag Kópavogs, Kópavogsbær, Landvernd, Lionshreyfingin, Kvenfélagasamband Íslands, Skógræktarfélag Íslands og aðildarfélög þess og fleiri.

Leiðarlýsing að Guðmundarlundi á já.is.

Leiðarlýsing að Guðmundarlundi á Google Maps

Vefur Skógræktarfélags Kópavogs

https://birkiskogur.is/