Sorphirða um jól og áramót

Munum að flokka rétt um jólin.
Munum að flokka rétt um jólin.

Vegna hátíðanna mun sorphirðan í Kópavogi hliðrast. Sorphirðudagatalið fyrir tímabilið er aðgengilegt á heimasíðu Kópavogsbæjar og íbúar hvattir til þess að kynna sér það. Unnið verður að því að koma sorphirðunni í rétt horf eins fljótt og auðið í janúar. Athugið að líta skal á sorphirðudagatalið sem viðmiðunardagatal. Veðurfar, veikindi, bilanir og aðrir ófyrirséðir þættir geta haft áhrif.

Til að tryggja greiðan aðgang hirðuaðila og flýta fyrir hirðu eru íbúar beðnir um að moka vel frá sorptunnum ef það snjóar.

Skoða sorphirðudagatal

Nýtum grenndarstöðvar

Yfir jól og áramót eykst úrgangur til muna og sorptunnur geta fyllst hraðar en venjulega. Íbúar eru hvattir til að nýta sér grenndarstöðvarnar í Kópavogi til að losa um gler, málm, pappír og plastumbúðir. Grenndarstöðvar eru opnar allan sólarhringinn og staðsettar víða um bæinn.

Finna grenndarstöðvar

Munum að flokka rétt

Rétt flokkun sparar pláss í tunnunum heima og stuðlar að betri endurvinnslu.

Settu:

  • Pappír og pappa í pappatunnu eða í gáma á grenndarstöð.
  • Plastumbúðir í plasttunnu eða í gáma á grenndarstöð.
  • Gler og málma í gáma á grenndarstöðvar.
  • Lífrænn úrgangur í matarleifatunnuna heima.

Á vef Sorpu er flokkunarleitarvél ef fólk er óvisst um hvernig á að flokka.

Flokkunarleitarvél