Inga Bríet sigraði Stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi

Marel Briem í öðru sæti, Inga Bríet Valberg í fyrsta sæti og Sara Mjöll Serrano í því þriðja. 
Marel Briem í öðru sæti, Inga Bríet Valberg í fyrsta sæti og Sara Mjöll Serrano í því þriðja. 
Inga Bríet Valberg, nemandi í Snælandsskóla, sigraði Stóru upplestarkeppnina en hún var haldin hátíðleg í Salnum í Kópavogi í gær. Alls tóku 18 nemendur þátt úr 11 grunnskólum Kópavogs. Í öðru sæti var Marel Breim en hann er nemandi í Kópavogsskóla og í þriðja sæti var Sara Mjöll Serrano úr Vatnsendaskóla.
 
Sérstaka viðurkenningu fengu þau Snædís Eva Örvarsdóttir úr Hörðuvallaskóla og Kristján Helgi Hilmarsson úr Lindaskóla fyrir glæsta frammistöðu.
 
Nemendur úr skólahljómsveit Kópavogs komu fram undir stjórn Össurar Geirssonar, en þar komu fram Ángela Inga K. Venegas, Maria Motoc og Þuríður Katrín Arnórsdóttir og þær léku á klarínett. Síðar komu þær Ólavía Birgisdóttir Gröndal og Þórdís Inga Einarsdóttir, flautuleikarar en meðleikari með þeim var Halldór Hauksson kennari.
 
Þetta er í 29. sinn sem Stóra upplestrarkeppnin er haldin hér í Kópavogi en keppnin á 30 ára afmæli í ár. Líkt og hér í Kópavogi fara sambærilegar hátíðir fram um land allt í mars. Aðstandendur keppninnar voru upphaflega Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn. Nú hafa Raddir hins vegar skilað af sér þessu verkefni til sveitarfélaganna sem hafa nú það hlutverk að sjá um utanumhald og framkvæmd keppninnar og við höfum haldið sama formi og lagt var upp með í upphafi. Stóra upplestrarkeppnin var sett á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn og síðan þá hafa nemendur og kennarar í 7. bekkjum í grunnskólum Kópavogs verið að undirbúa sig.
 
Stóra upplestrakeppnin snýst ekki eingöngu um lestur – heldur hugrekki, tjáningu og kraft orðsins. Keppnin fór fram í þrem umferðum. Í fyrstu umferð lásu keppendur valdar svipmyndir úr sögunni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Í annarri umferð lásu þátttakendur ljóð sem þeir völdu úr hópi 10 ljóða eftir fjölda höfunda og að síðustu lásu keppendur ljóð að eigin vali, bundið eða óbundið, nýtt eða gamalt.
 
Aðalverðlaunin í ár voru gjafabréf frá Menntasviði Kópavogsbæjar fyrir fyrstu 3 sætin upp á: 10, 15 og 20 þúsund krónur.
 

 

Hér má sjá lista þeirra sem tóku þátt.

1. Guðný Rut Ásgeirsdóttir – Vatnsendaskóla
2. Styrmir Orri Orrason – Smáraskóla
3. Katrín Arna Þorgilsdóttir – Álfhólsskóla
4. Knútur Blöndal – Lindaskóla
5. Inga Bríet Valberg – Snælandsskóla
6. Hrafnhildur Rós Jónsdóttir – Kársnesskóla
7. Snædís Eva Örvarsdóttir – Hörðuvallaskóla
8. Ella Sif Ágústsdóttir - Salaskóla
9. Marel Briem – Kópavogsskóla
10. Sara Mjöll Serrano – Vatnsendaskóla
11. Rebekka Grace Couper – Smáraskóla
12. Brynhildur Arna Magnúsdóttir - Álfhólsskóla
13. Kristján Helgi Hilmarsson – Lindaskóla
14. Þórunn Stefanía Davíðsdóttir – Snælandsskóla
15. Þórunn Obba Gunnarsdóttir – Kársnesskóla
16. Jón Þorsteinn Þórðarson – Hörðuvallaskóla
17. Snædís Ólafsdóttir – Salaskóla
18. Óskar Sæmundur Sigfússon - Kópavogsskóla