Stóri plokk dagurinn 2025
Kópavogsbær tekur þátt í hreinsunarátakinu Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 27.apríl.
Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af Félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi.
Hægt verður að nálgast ruslapoka og einnota hanska í Þjónustumiðstöð Kópavogs, Askalind 5, föstudaginn 26. apríl og laugardaginn 27. apríl frá 10.00 til 14.00.
Senda má póst á Þjónustumiðstöð Kópavogs til að tilkynna staðsetningu poka, sem verða sóttir eftir helgi, netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is . Einnig er hægt að fara með pokana beint í Sorpu.
Að plokka gefur fólki tækifæri til að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Að plokka fegrar umhverfi okkar og náttúru.
PLOKKTRIXIN
Hvað þarf að hafa?
- Glæra plastpoka - best er að hafa tvo poka, setja plastið í einn og allt annað í hinn.
- Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá.
- Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.
Hvernig erum við útbúin?
- Klæðum okkur eftir aðstæðum. Hanskar eru ákjósanlegir. Öryggisvesti eru ákjósanleg en skilda ef við erum að plokka meðfram vegum eða við götur.
Hvað á að gera við þar sem safnast?
- Senda tölvupóst á netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is með staðsetningu pokanna sem verða sóttir eftir helgi.
- Fara með plokk afraksturinn á næstu endurvinnslustöð SORPU.
Frekari upplýsingar um Stóra plokkdaginn er að finna á plokk.is