Stóri plokkdagurinn 2024

Hægt er að nálgast poka fyrir rusl í Þjónustumiðstöð Kópavogs í Álalind.
Hægt er að nálgast poka fyrir rusl í Þjónustumiðstöð Kópavogs í Álalind.

Kópavogsbær tekur þátt í Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 28.apríl. Hægt verður að nálgast ruslapoka og einnota hanska í Þjónustumiðstöð Kópavogs, Askalind 5, á föstudeginum 26. apríl frá 08.00 til 15.00 og laugardaginn 27. apríl frá 10.00 til 14.00.

Senda má póst á Þjónustumiðstöð Kópavogs til að tilkynna staðsetningu poka, sem verða sóttir eftir helgi, netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is . 

Einnig er hægt að fara með pokana beint í Sorpu. 

Þetta er í sjötta sinn sem félagsskapurinn Plokk á Íslandi stendur fyrir átakinu.

Að plokka gefur fólki tækifæri til að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Að plokka fegrar umhverfi okkar og náttúru.

PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI – Góð ráð frá Plokk á Íslandi.

1. Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
2. Stofna viðburð eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
3. Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
4. Klæða sig eftir aðstæðum.
5. Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.
6. Hringja eða senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.
7. Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.