Styrkir úr lista- og menningarsjóði

Styrkþegar menningarstyrkja Kópavogs 2016 ásamt lista- og menningarráði.
Styrkþegar menningarstyrkja Kópavogs 2016 ásamt lista- og menningarráði.

Umsóknum skal skila fyrir 17. nóvember 2016. Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum og listhópum.

Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og afgreiðir þær fyrir árslok.

Umsóknareyðublöð eru á vef Kópavogsbæjar eða hjá þjónustuveri bæjarins, Fannborg 2.

Nánari upplýsingar veitir Arna Schram, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið:arnaschram@kopavogur.is

Á umsókn skal standa:

Lista- og menningarsjóður
Fannborg 2
200 Kópavogur