Styrkir úr lista- og menningarsjóði

Styrkir úr lista- og menningarsjóði eru lausir til umsóknar.
Styrkir úr lista- og menningarsjóði eru lausir til umsóknar.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði vegna verkefna á árinu 2022.

 Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs, sem eru í samræmi við menningarstefnu Kópavogsbæjar. 

Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. 

Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til verkefna og viðburða sem þjóna íbúum í sem flestum hverfum bæjarfélagsins. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir.

 Umsóknum skal skila fyrir 22. október 2021.

 

Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðunni www.meko.is.

 

Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið:
soffiakarls@kopavogur.is