Sumardvöl í skólum fyrir sex ára börn

Sex ára börn í sumardvöl í Salaskóla.
Sex ára börn í sumardvöl í Salaskóla.

Ríflega 400 börn í Kópavogi sem eru fædd árið 2009 og hefja skólagöngu í haust sækja nú dægradvöl í skólum sínum. Hugmyndin er að skapa  samfellu milli skólastiga, börnin útskrifast úr leikskóla fyrir sumarfrí en fá tvær vikur í sumardvöl dægradvalar í skólunum sínum. Markmiðið Kópavogsbæjar með því að bjóða upp á þjónustuna er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun barnanna að umhverfi grunnskólanna áður en kennsla hefst. Meðal þess sem bryddað hefur verið upp á í vikunni er sameiginleg Heiðmerkurferð skólabarnanna.

Þetta er annað árið í röð sem nemendum í 1. bekk i skólum Kópavogs stendur sumardvölin til boða og hefur þjónustan mælst vel fyrir. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við sumardvölinni, foreldrar eru ánægðir með að börnin fái að kynnast skólaumhverfinu vel áður en  skólinn hefst og börnunum finnst þetta spennandi,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðstjóri menntasviðs Kópavogsbæjar.

Alls hefja um rúmlega 500 börn nám í 1. bekk í grunnskólum Kópavogs 24. september, og nýta tæp 80% sér þjónustu sumardvalar.