Sumarstörfum fjölgað

Meðal fjölbreyttra verkefna sumarstarfsfólks 2020 var að mála tröppur við Bókasafn Kópavogs.
Meðal fjölbreyttra verkefna sumarstarfsfólks 2020 var að mála tröppur við Bókasafn Kópavogs.

Sumarstörfum hjá Kópavogsbæ hefur verið fjölgað og opnað fyrir umsóknir í fleiri störf en áður höfðu verið auglýst.

Stefnt er að því að um 750 sumarstörf verði í Kópavogi í ár eða svipaður fjöldi og í fyrra en það var tæplega 80% aukning frá árínu 2019.

Sumarstarfsfólk í Kópavogi starfar á fjölmörgum stöðum innan sveitarfélagsins, má þar nefna sundlaugar, íþróttafélög, vinnuskóla, bæjarskrifstofur og þjónustumiðstöð. Umhverfi og opin svæði í Kópavogi var einstaklega vel hirt síðasta sumar, vegna fjölda starfsfólks og má vænta þess sama í sumar.

Verður tekið mið af fyrirhuguðum stuðningi Vinnumálastofnunar í skipulagningu sumarstarfa, líkt og síðasta sumar.

Sumarstörf í Kópavogi eru sem fyrr 18 ára og eldri. Flest koma til starfa í júníbyrjun.

Sækja um sumarstarf