The Color Run flytur í Kópavog!

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Ísleifur B. Þórhallsson framkvæmdastjóri Senu Live fa…
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Ísleifur B. Þórhallsson framkvæmdastjóri Senu Live fagna því að The Color Run flytur í Kópavoginn í sumar.

The Color Run, mun fara fram í Kópavogi í ár í tilefni 70 ára afmælis Kópavogs. Litahlaupið fagnar 10 ára afmæli sínu á Íslandi þann 16. ágúst næstkomandi og mun flytja sig um set en hingað til hefur viðburðurinn verið haldinn í Reykjavík, auk þess að hafa einnig farið fram á Akureyri.

„Okkur finnst mjög spennandi að koma í Kópavoginn og leyfa þátttakendum að hlaupa um Kópavogsdalinn. Gönguleiðin frá Kópavogsvelli að Digraneskirkju er algjör útivistarparadís sem fólk elskar að ganga og skokka. Það eru nokkur svæði á höfuðborgarsvæðinu sem búa yfir þessum eiginleika og við erum því mjög spennt að geta loksins boðið þátttakendum eina af þessum hlaupaleiðum,“ segir Ragnar Már Vilhjálmsson, verkefnastjóri The Color Run á Íslandi.

Í ár fagnar Kópavogsbær því að 70 ár eru liðin frá því að bærinn fékk kaupstaðaréttindi.

„Við höldum upp á afmæli bæjarins með ýmsum viðburðum og uppákomum í ár. Kópavogur hefur jafnan verið kallaður íþróttabær og því fannst okkur tilvalið að fá sennilega skemmtilegasta og litríkasta íþróttaviðburð landsins til að fagna afmælinu með okkur og erum virkilega ánægð að fá Litahlaupið í bæinn okkar í ár,” segir bæjarstjórinn Ásdís Kristjánsdóttir.

Litahlaupið er 5 km löng skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem þátttakendur eru litaðir með litapúðri eftir hvern kilómetra og við endamarkið verður síðan mikil fjölskylduskemmtun með litapúðursprengingum. Ólíkt flestum öðrum hlaupum snýst The Color Run ekki um að koma í mark á sem skemmstum tíma heldur að njóta upplifunar litahlaupsins. Þátttakendur byrja hlaupið í hvítum bol en verða í öllum regnbogans litum þegar komið er í endamarkið.

Viðburðurinn fer fram laugardaginn 16. ágúst við Kópavogsvöll þaðan sem þátttakendur hlaupa 5km leið í gegnum Smárahverfið og Kópavogsdalinn. Mikil fjölskylduskemmtun með tilheyrandi litadýrð verður á viðburðarsvæðinu við Kópavogsvöll að hlaupi loknu með ýmsum skemmtiatriðum - og verða þau tilkynnt innan skamms. 

Vefsíða The Color Run