Þjónustuskerðing í Salalaug

Salalaug.
Salalaug.

Nú verður farið í meiriháttar viðhald í klefum og á útlaug á næstu tveimur til þremur vikum. Framkvæmdir hefjast annan í Hvítasunnu, 9. júní, og munu standa til mánudagsins 23. júní, að minnsta kosti. Skipt verður um loftræstisamstæður (fyrir búningsklefa, anddyri og fleiri svæði), lagt verður nýtt epoxy á báða inni búningsklefa, skipt verður um spegla í klefum, útilaug verður tæmd í um tvær vikur og endur fúgað í hluta laugar (og fleira smávægilegt).

Hér yfirlit yfir þjónustuskerðingar:

  1. – 14. júní verður inniklefi karla lokaður (epoxy, speglar og loftræsting). Báðir útiklefar verða notaðir fyrir karla á umræddum tíma og því engin kvk útiklefi. Stefnt er að því að opna karla klefann aftur sunnudaginn 15. júní.

15.- 20. júní verður inniklefi kvenna lokaður (epoxy, speglar og loftræsting). Báðir útiklefar verð notaðir fyrir konur á umræddum tíma og því engin kk útiklefi. Stefnt er að því að opna kvennaklefann aftur laugardaginn 21. júní.

9.-22. júní verður útilaugin lokuð vegna viðhalds á fúgu og fleiru. Stefnt er að þvi að opna útilaugina aftur mánudaginn 23. júní.

Allar þessar dagsetningar eru með fyrirvara um að ekkert óvænt komi upp í framkvæmdum og að veður til viðgerða á útilaug verði hagsælt.

Ekki er útilokað að grípa þurfi til fjöldatakmarkana ofan í laugina á viðgerðartímanum þar sem snagar í útiklefum eru takmarkaðir.