Þrír gæsluvellir í Kópavogi

Börn að leika sér í fjörunni
Börn að leika sér í fjörunni

Gæsluvellir í Kópavogi hefja starfsemi sína þann 30. júní næstkomandi. Þrír gæsluvellir verða reknir í bænum í sex vikur sumar, frá 30. júní til 8. ágúst. Opnunartími vallanna er milli tíu og tólf fyrir hádegi og svo frá hálf tvö til hálffimm eftir hádegi. 

Greitt er fyrir hverja heimsókn og er heimsóknargjald hundrað krónur.

Gæsluvellirnir þrír sem um ræðir eru Holtsvöllur við Borgarholtsbraut, þekktur sem Stellu róló. Síminn þar er 618 8543.

Þá verður opið á Lækjavelli við Lækjasmára, sími þar er 618 8541.

Loks er gæsluvöllur á Hvammsvelli við Hvammsveg, sími 618 8542.