Tilnefningar til umhverfisverðlauna

Frá afhendingu viðurkenningar á götu ársins 2016,
Frá afhendingu viðurkenningar á götu ársins 2016,

Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga í umhverfismálum í Kópavogi.  Slíkar viðurkenningar eru veittar ár hvert af Umhverfis- og samgöngunefnd og bæjarstjórn.  Veittar hafa verið viðurkenningar þeim sem þótt hafa skarað fram úr í hönnun, frágangi og viðhaldi umhverfis og húsa. Viðurkenningar hafa verið veittar ár hvert síðan 1995.

Veittar hafa verið viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:

•Umhverfi og samfélag

•Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar

•Endurgerð húsnæðis

•Framlag til umhverfismála

•Framlag til ræktunarmála

•Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum

•Hönnu

Að auki er hægt að tilnefna götu ársins sem bæjarstjórn Kópavogs veitir viðurkenningu. Umhverfisviðurkenningar verða veittar í ágúst. Hægt er að skila inn tilnefningum til Bjarka Valberg, umhverfisfulltrúa Kópavogs á netfangið Bjarki.Valberg@Kopavogur.is Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með miðvikudagsins 13. júní, 2018.  Á heimasíðu Kópavogs er hægt að sjá hverjir hafa hlotið Umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar allt frá árinu 1995