Tólf mánaða börn fá leikskólapláss í Kópavogi í fyrsta sinn

Tólf mánaða börn fá leikskólapláss í Kópavogi haustið 2026.
Tólf mánaða börn fá leikskólapláss í Kópavogi haustið 2026.

Öllum börnum sem fædd eru í ágúst 2025 og eldri hefur verið boðið leikskólapláss í leikskólum Kópavogs í haust. Yngstu börn verða því tólf mánaða þegar aðlögun hefst í leikskólum Kópavogs að loknu sumarfríi og er þetta er í fyrsta sinn sem tólf mánaða börn fá leikskólapláss í Kópavogi.

Þessi árangur endurspeglar jákvæð áhrif Kópavogsmódelsins á starfsumhverfi barna og starfsfólks í leikskólum Kópavogs. Mönnun í leikskólum bæjarins gengur vel og lokunardagar vegna mönnunarvanda heyra sögunni til. Þannig hefur aukinn stöðugleiki í starfseminni skilað betri þjónustu og gert Kópavogsbæ kleift að taka inn yngri börn en nokkru sinni fyrr.

„Við höfum náð ótrúlegum árangri í leikskólum Kópavogs með tilkomu Kópavogsmódelsins. Þessi árangur birtist meðal annars í því að leikskólar eru nánast fullmannaðir, þjónustan er stöðugri og áreiðanlegri og börn eru ekki send heim vegna manneklu. Þá erum við jafnframt stolt af því að tæplega 55% starfsfólks í leikskólum Kópavogs er með háskólamenntun, sem er mjög hátt hlutfall á landsvísu. Við erum í fyrsta skipti að veita tólf mánaða börnum leikskólapláss sem er skýrasti vitnisburðurinn um árangur af Kópavogsmódelinu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi.