Tónlistarhátíð í Kópavogi

Menningarhúsin í Kópavogi
Menningarhúsin í Kópavogi

Um sextíu nemendur, fimmtíu flytjendur, tuttugu kennarar og um þrjátíu aðrir gestir taka þátt í Kammer-tónlistarhátíð unga fólksins sem stendur yfir dagana 7. til 17. ágúst í menningarstofnunum Kópavogs og víðar. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin en hún er stærsta hátíð fyrir klassíska tónlist sem haldin hefur verið á Íslandi. Hún er styrkt með myndarlegum hætti af lista- og menningarsjóði Kópavogs.

Á hátíðinni er kastljósinu beint að kammertónlist í hvaða mynd sem er. Þar verða fetaðar ótroðnar slóðir í tónlist og tónlistarflutningi og frumflutt verða ný  verk eftir ung tónskáld.

Eitt helsta markmiðið er að hvetja til samræðu milli flytjenda, tónskálda og áheyrenda. Meginmarkmiðið er þó að hlúa að grasrótinni og gefa ungu tónlistarfólki, flytjendum jafnt sem tónskáldum, tækifæri til tjáningar.

Dagskráin er afar fjölbreytt og er frítt inn á flesta viðburði nema kvöldtónleika. Enn er hægt að tryggja sér miða á midi.is, eða klukkutíma fyrir tónleika á tónleikastað.

Skipuleggjendur og frumkvöðlar hátíðarinnar eru eftirfarandi tónlistarkonur: Guðný Þóra Guðmundsdóttir, Elín Ásta Ólafsdóttir, Gunnhildur Daðadóttir og Guðrún Dalía Salomonsdóttir.

Kammer-tónlistarhátíð unga fólksins