Últíma-húsið rifið

Skeljabrekku 4 er rifin niður en húsið hefur verið í mikilli niðurníðslu undanfarin ár.
Skeljabrekku 4 er rifin niður en húsið hefur verið í mikilli niðurníðslu undanfarin ár.

Unnið er að því þessa dagana að rífa niður Últíma-húsið, svonefnda, að Skeljabrekku 4 en húsið hefur verið í mikilli niðurníðslu undanfarin ár.  Þetta rauða hús blasir við þegar keyrt er frá Reykjavík inn í Kópavog og hefur það þótt vera mikið lýti á norðurandliti bæjarins. Kópavogsbær keypti húsið gagngert til að rífa það enda er verið að skipuleggja Auðbrekku-svæðið upp á nýtt. 

Últíma-húsið dregur nafn sitt af því að klæðagerðin Últíma var þar með vefnaðarverksmiðju á árum áður. Húsið hefur einnig verið kallað Króks-húsið og var reyndar nefnt svo, í fyrstu tilkynningunni um þetta mál hér á vef Kópavogsbæjar. Fyrirtækið Krókur sem var með dráttarbíla þjónustu hafði þar nefnilega líka höfuðstöðvar á eftir Últíma.

Húsið er um 675 fermetrar að stærð og er það á einni hæð. Það var aldrei fullbyggt á sínum tíma.

Auðbrekku-svæðið sem nær frá Nýbýlavegi og upp að Hamraborg er skilgreint sem þróunarsvæði á nýju aðalskipulagi Kópavogsbæjar. Það þýðir að verið er að endurskipuleggja svæðið með það í huga að þar verði blönduð byggð; íbúðir og fyrirtæki. 
 
Vonast er til að skipulagsvinna á svæðinu taki tvo til þrjá mánuði og að því búnu verði hægt að byggja upp svæðið að nýju í samræmi við breytta stefnu.
 
Niðurrifið á húsinu er því enn eitt skrefið í átt að fallegri og snyrtilegri ásýnd Kópavogsbæjar.