Umhverfisviðurkenningar 2017

Í götu ársins 2015.
Í götu ársins 2015.

Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga í umhverfismálum í Kópavogi. Slíkar viðurkenningar eru veittar ár hvert af umhverfis- og samgöngunefnd og bæjarstjórn. Veittar hafa verið viðurkenningar þeim sem þótt hafa skarað fram úr í hönnun, frágangi og viðhaldi umhverfis og húsa.

Viðurkenningar hafa verið veittar ár hvert síðan 1995.

Veittar hafa verið viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:

  • Umhverfi og samfélag
  • Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar
  • Endurgerð húsnæðis
  • Framlag til umhverfismála
  • Framlag til ræktunarmála
  • Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum
  • Hönnun

Að auki er hægt að tilnefna götu ársins sem bæjarstjórn Kópavogs veitir viðurkenningu. Umhverfisviðurkenningar verða veittar í ágúst.

Hægt er að skila inn tilnefningum til Bjarka Valberg, umhverfisfulltrúa Kópavogs á netfangið Bjarki.Valberg@kopavogur.is

Frestur til að skila inn tilnefningum er til miðvikudagsins 14. júní, 2017, kl. 12:00.