Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfisviðurkenningar eru veittar ár hvert.
Umhverfisviðurkenningar eru veittar ár hvert.

Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga í umhverfismálum í Kópavogi.  Viðurkenningarnar eru veittar ár hvert af umhverfis- og samgöngunefnd og bæjarstjórn. Veittar hafa verið viðurkenningar þeim sem þótt hafa skarað fram úr í hönnun, frágangi og viðhaldi umhverfis og húsa.

Viðurkenningar hafa verið veittar ár hvert síðan 1995.

Veittar hafa verið viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:

  • Umhverfi og samfélag
  • Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar
  • Endurgerð húsnæðis
  • Framlag til umhverfismála
  • Framlag til ræktunarmála
  • Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum
  • Hönnun

Ekki er endilega veitt viðurkenningar í öllum flokkum hvert ár.

Hægt er að skila inn tilnefningum til Bjarka Valberg, umhverfisfulltrúa Kópavogs á netfangið bjarki.valberg@kopavogur.is 

Frestur til að skila inn tilnefningum er til miðvikudagsins 16. júní, 2021, kl. 12:00.