Ungir sýningarstjórar óskast

Auglýst er eftir ungum sýningastjórum í Kópavogi.
Auglýst er eftir ungum sýningastjórum í Kópavogi.

Kópavogsbær leitar að ungum sýningarstjórum, krökkum sem búa í Kópavogi á aldrinum 8- 15 ára sem hafa áhuga á umhverfismálum, bókmenntum, listum og vísindum til að vinna með bænum að skemmtilegum verkefnum og viðburðum á næsta ári í kringum Vatnsdropann. Vatnsdropinn er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem tengir saman sígildar barnabókmenntir eftir H.C. Andersen, Tove Jansson og Astrid Lindgren við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Árið 2022 verður áhersla lögð á 15. markmiðið, Líf á landi.

Við hvetjum alla krakka á aldrinum 8-15 ára að sækja um og biðjum þau að svara einni spurningu í umsókninni: Hvernig mundir þú bjarga heiminum ef þú fengir að ráða í einn dag?

Umsóknarfrestur er til 30. nóvember og umsækjendur mega skila inn umsókn á hvaða formati sem þeir kjósa (texta eða t.d. myndabandi) á netfangið: vatnsdropinn@kopavogur.is