Ungmennaþing Kópavogs 2026

Ungmennaþing Kópavogs fór fram í Molnum, miðstöð unga fólksins, þann 23. mars með þátttöku ungs fólks, 16 til 25 ára, úr Kópavogi. Ungmennaþing Kópavogs er lýðræðisvettvangur þar sem ungmenni í Kópavogi koma saman til að ræða málefni sem snerta þau, leggja fram hugmyndir og hafa áhrif á þróun þjónustu, skóla- og frístundastarfs og framtíðina í Kópavogi. Þingið, sem er að mestu skipulagt af Ungmennaráði Kópavogs, er hluti af markvissri vinnu bæjarins við að efla virka þátttöku ungs fólks í samfélaginu.
 
Ungmennaþingið er í kjölfar barnaþingsins sem haldið var 18. mars síðastliðinn. Þingin mynda saman samfellda lýðræðisleið frá barnæsku til fullorðinsára og styðja við markmið um farsæld, þátttöku og rödd barna og ungmenna í Kópavogi sem barnvænt sveitarfélag. Með ungmennaþingi erum við að tryggja að ná til breiðari aldurshóps og er þingið opnara fyrir almenna þátttöku sem er ekki í gegnum skólana og því er stýring og skipulag meira leitt af unga fólkinu sjálfu.
 
„Raddir ungmenna skipta máli og Ungmennaþing Kópavogs gefur þeim frábært tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og taka þátt í umræðu um samfélagið. Ungmenni eru þau sem taka við samfélaginu í framtíðinni og því er mikilvægt að raddir barna og ungmenna heyrist jafn skýrt og raddir fullorðinna.” segir Magnús Ingi Árnason, formaður Ungmennaráðs Kópavogs.
 
Markmið Ungmennaþings Kópavogs er að:

  • að skapa vettvang þar sem ungt fólk getur tjáð sjónarmið sín,
  • valdefla ungt fólk, efla þátttöku þess og virkni,
  • safna tillögum og hugmyndum sem snerta ungt fólk og bæjarlífið
  • efla lýðræðislega þátttöku og rödd ungs fólks,
  • tengja ungmenni við stjórnendur og kjörna fulltrúa
Á Ungmennaþingi Kópavogs komu meðal annars fram tillögur sem snúa að auknu fjármagni í list og verkgreinar og valáfanga, jólaþorpi og skautahöll, aukinni sumaropnun félagsmiðstöðva, lengri opnun sundlauga á kvöldin, því að gera Hamraborg að alvöru miðbæ, göngubrú yfir Reykjanesbraut, styðja betur við minni íþróttafélög og passa upp á fjölbreytni íþróttaframboðs o.fl.