Uppbyggingarhraði ljósleiðara aukinn

Að lokinni undirritun viljayfirlýsingar Kópavogsbæjar og Gagnaveitu Reykjavíkur um ljósleiðaravæðin…
Að lokinni undirritun viljayfirlýsingar Kópavogsbæjar og Gagnaveitu Reykjavíkur um ljósleiðaravæðingu bæjarins. Frá vinstri, Theodóra Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Kópavogsbær og Gagnaveita Reykjavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um aukinn uppbyggingarhraða Ljósleiðarans í bæjarfélaginu. Allir nýir viðskiptavinir Gagnaveitu Reykjavíkur í Kópavogi munu fá  búnað sem ræður við 1 Gb/s gagnahraða. Með þessu er Gagnaveitan að koma Kópavogsbæ í fremstu röð bæjarfélaga í fjarskiptum en 64% heimila í  munu í lok árs hafa aðgengi að hraðasta Interneti á Íslandi. Ljósleiðaravæðingu bæjarins lýkur síðan fyrir lok ársins 2017 en þá munu öll heimili í bænum hafa aðgengi að Ljósleiðaranum.

,,Þetta eru góð tíðindi á afmælisári bæjarins. Við erum ánægðir með að Gagnaveitan hafi komið til móts við óskir okkar í Kópavogsbæ um að hraða uppbyggingu ljósleiðara til þess að svara þörf okkar á hraðari gagnaflutningum. Ljósleiðarinn er lykill að skjótum og greiðum viðskiptum og samskiptum í atvinnulífi, ásamt því að vera tækni sem eykur lífsgæði almennings. Hraðari gagnaflutningar hjálpa okkur einnig við að ná markmiðum í spjaldtölvuvæðingu skóla bæjarins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.

Það var af mikilli framsýni sem farið var í ljósleiðaravæðingu til heimila á Íslandi fyrir um 10 árum síðan. Í árslok 2015 munu 70.000 heimili á Íslandi verða tengd Ljósleiðaranum og hefur mikil ánægja verið með hann hjá viðskiptavinum. Nú þegar er Ísland á meðal tíu efstu þjóða Evrópu í dreifingu á ljósleiðara með 55% heimila sem hafa aðgengi að öflugum ljósleiðara.

,,Ljósleiðarinn er nauðsynlegur fyrir þá byltingu sem framundan er í snjallvæðingu heimila. Með ljósleiðara Gagnaveitunnar ná viðskiptavinir hröðustu tengingu á Íslandi. Þjónusta sjónvarpsveitna og miðlun myndefnis af öllu tagi kallar á öflugra og hraðara netsamband. Gagnaveita Reykjavíkur er vel í stakk búin til að svara þessu kalli og horfir enn lengra fram á veginn í þessari tæknivæðingu. Þannig fylgjum við eftir þeirri þróun sem á sér stað hjá framsæknustu gagnaveitum heims,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.