Uppskeruhátíð Vinnuskólans umfangsmikil í ár

Vinnuskóli Kópavogs hlaut alþjóðlega viðurkenningu Skóla á grænni grein í áttunda sinn.
Vinnuskóli Kópavogs hlaut alþjóðlega viðurkenningu Skóla á grænni grein í áttunda sinn.

Uppskeruhátíð Vinnuskóla Kópavogs var haldin fimmtudaginn 15. júlí þar sem ungmenni í Vinnuskólanum komu saman og fögnuðu góðu starfi. Hátíðin var umfangsmeiri en vanalega þar sem Grænfánadeginum og uppskeruhófinu var slegið saman. Um 1500 unglingar starfa hjá Vinnuskóla Kópavogs í sumar og var þeim öllum boðið í hátíðarhöld á Kópavogstúni.

 

Vinnuskólinn hlaut alþjóðlega viðurkenningu Skóla á grænni grein í áttunda sinn fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fræðslu um umhverfismál. Oliver Sigurjónsson, verkstjóri í Vinnuskóla Kópavogs tók við viðurkenningarskjali sem var afhent af Jóhannesi Bjarka Urbancic Tómassyni, stjórnarmanni í Landvernd. Ungmenni úr Vinnuskóla Kópavogs tóku við grænfánanum. 

 

Boðið var upp á veitingar og fjölmörg skemmtiatriði. Götuleikhús Kópavogs steig fyrst á svið með leikatriði við góðar undirtektir. Tónlistaratriði fluttu hljómsveitin Hipsumhaps, rapparinn og sjónvarpsstjarnan Bassi Maraj og að lokum rapparinn Haki. Uppskeruhátíð Vinnuskóla Kópavogs vakti mikla lukku meðal unglinganna enda fögnuðurinn sérstaklega sniðinn að þeim.