Úthlutun í leikskóla fyrir haustið 2025

Barn í sandkassa að leika sér
Barn í sandkassa að leika sér

Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn sem fædd eru á fyrstu mánuðum ársins 2024 og fyrr hefst um miðjan mars og stendur fram í apríl.

Í fyrri hluta úthlutunar er unnið úr umsóknum sem berast fyrir 10. mars 2025. Umsóknir sem berast eftir 10.mars fara á bið/frystingu á meðan úthlutun stendur yfir. Sækja um leikskólapláss.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mörg börn fædd á árinu 2024 fá úthlutun fyrir haustið. Nánari upplýsingar um úthlutun vegna barna fædd árið 2024 verða veittar þegar nær dregur að seinni hluta úthlutunar.

Barnaskóli Kársness mun hefja starfsemi sína skólaárið 2025 – 2026. Þar verða leikskóladeildir fyrir um 80 börn og er stefnt að því að úthluta nú í vor fyrir næsta skólaár.

Við vekjum athygli á því að þeir sem hafa hug á að innrita börn sín í þann skóla hafa tök á að setja Barnaskóla Kársness sem fyrsta val í umsókn um leikskóla eða sækja um flutning úr öðrum leikskólum í þann skóla fyrir 10. mars nk.

Athugið - Börn þurfa hafa lögheimili og vera búsett í Kópavogi til að geta fengið úthlutað leikskólaplássi í Kópavogi.