Varhugavert ástand í asahláku

Mikilvægt er að hreinsa frá niðursföllum vegna fyrirhugaðrar asahláku.
Mikilvægt er að hreinsa frá niðursföllum vegna fyrirhugaðrar asahláku.

Vegna asahláku föstudaginn 20. janúar eru húseigendur beðnir um að hreinsa snjóhengjur og grýlukerti af húsþökum í dag og hreinsa vel frá niðurföllum. 

Upplýsingar um staðsetningar niðurfalla er að finna á nokkrum stöðum:

Á kortavef Kópavogs: Haka í Veitur og svo fráveitubúnað. 

Á vef ja.is, slá ínn staðsetningu og velja götusýn, niðurföll sjást á ljósmynd.

Bent er á í tilkynningu SHS að í hálkuvörnum er ráðlegt að nota sand en ekki salt.

Tilkynning Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins:

Á morgun föstudag er gert ráð fyrir asahláku í kjölfar hlýnandi veðurs eins og komið hefurfram í fréttum frá Veðurstofu Íslands. Eftir langan frostakafla stefnir í að það verðir allt að 10 stiga hiti á láglendi með rigningu.

Af þessu tilefni vill SHS ítreka við húseigendur, að þeir hreinsi snjóhengjur og grýlukerti af húsþökum í dag. Ástæðan er sú að við þessar erfiðu veðuraðstæður geti fólki stafað hætta af þegar snjór og ís fellur niður. Við slíkar aðstæðu getur einnig orðið umtalsvert eignatjón.

Einnig er mikilvægt að hreinsa vel frá niðurföllum til að minnka líkur á að vatn flæði inn í hús. Talsvert eignatjón getur orðið af slíkum vatnstjónum eins og þekkt er, sem í mörgum tilfellum er hægt að koma í veg fyrir.  SHS vill einnig benda á að ef fólk beitir hálkuvörnum við húsnæði, er ráðlagt að nota sand en
ekki salt.