Vatnsrennslið í Kópavogi jókst í hálfleik

Vatnsrennslið í Kópavogi jókst til muna á fyrstu mínútunum í hálfleik Íslendinga og Króata í gær. Notkunin fór úr 175 lítrum á sekúndu í 257 lítra á sekúndu frá kl. 20:00 til 20:14. Þessar upplýsingar fengust frá Vatnsveitu Kópavogs. Leiða má líkum að því að Kópavogsbúar hafi þarna margir hverjir verið að fara á klósettið á sama tíma þar sem þeir hafi haldið í sér allan fyrri hálfleikinn.  

Samkvæmt upplýsingum frá áhaldahúsi Kópavogs eykst vatnsrennsli gjarnan á sumrin, þegar fólk vökvar garðana sína og á aðfangadag frá kl. 16:00 til 18:00 en þá eru væntanlega margir að fara í sturtu eða bað. Vatnsnotkunin eykst einnig þegar Evróvisjón stendur yfir, eða rétt á eftir íslenska laginu, en þá gefa líklega margir sér loks tíma til að fara á klósettið.

Orkuveita Reykjavíkur gaf í gær út upplýsingar um vatnsnotkun í Reykjavík á meðan landsleikurinn stóð yfir í Króatíu. Notkunin þar var svipuð og hér í Kópavogi sem segir okkur að höfuðborgarbúar hafi almennt nýtt hálfleikinn í gær til klósettferða.