Védís leiðir umbætur og þróun

Védís Hervör Árnadóttir skrifstofustjóri umbótar og þróunar.
Védís Hervör Árnadóttir skrifstofustjóri umbótar og þróunar.

Védís Hervör Árnadóttir hefur verið ráðin stjórnandi nýrrar skrifstofu umbóta og þróunar hjá Kópavogsbæ. Védís, sem hefur starfað sem forstöðumaður miðlunarsviðs í stjórnendateymi Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2020, var valin úr hópi 23 umsækjenda.

„Það er mikill heiður að fá að leiða nýja skrifstofu umbóta og þróunar með öflugu teymi. Hún verður vettvangur framsækinna lausna með áherslu á stafræna umbreytingu, gagnadrifna markaðssetningu og iðandi menningarlíf. Með einföldun ferla og nýtingu samlegðaráhrifa má auka skilvirkni og þjónustu og þannig standa vörð um sterka stöðu Kópavogs með umbótum sem skila sér í auknum lífsgæðum íbúa,“ segir Védís.

„Skrifstofa umbóta og þróunar mun spila lykilhlutverk í framþróun Kópavogsbæjar. Við ætlum að stíga markviss skref í að efla þjónustu við íbúa með aukinni stafrænni þjónustu. Védís á að baki farsæla stjórnenda- og rekstrarreynslu. Það er mikill fengur að fá svo öflugan stjórnanda með ferska sýn, en það er einmitt það sem ný skrifstofa þarfnast“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Védís leiddi innri og ytri markaðsmál SA á miklum umbótatímum sem fólu meðal annars í sér stafvæðingu ferla og endurmörkun. Þar áður starfaði Védís í stjórnendateymi Viðskiptaráðs Íslands. Auk áratuga stjórnendareynslu í íslensku atvinnulífi hefur hún fjölbreytta reynslu úr nýsköpunargeiranum en hún leiddi meðal annars brautryðjendastarf í íslenskri mál- og menntatækni í gegnum stafvæðingu hins margverðlaunaða Lærum og leikum með hljóðin sem síðar varð Kids Sound Lab í staðfærslu kóðans á erlendri grundu. Þá var Védís markaðsstjóri Vinunar, þjónustufyrirtækis fyrir fatlað fólk, langveika og aldraða þegar yfirfærsla ríkis til sveitarfélaga átti sér stað í málefnum fatlaðs fólks.

Védís hefur látið til sín taka í menningargeiranum sem tónlistarkona frá unglingsaldri. Hún er varaformaður Félags tónskálda og textahöfunda og stjórnarmaður í Tónskáldasjóði RÚV og STEFs. Hún hefur setið um árabil í stjórnum Leikfélags Reykjavíkur og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og var fyrsti formaður KÍTÓN. Einnig hefur hún unnið að handritagerð og framleiðslu, þar á meðal sem meðeigandi Freyja Filmworks um hríð.

Védís á að baki fjölbreytta reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum innan atvinnulífsins og opinberrar stjórnsýslu og hefur stýrt fjölda umbótaverkefna. Nýlega stýrði hún starfshópi um málefni Salarins í Kópavogi sem skilaði úrbótatillögum að nýju rekstrarmódeli tónleikahússins.

Védís Hervör Árnadóttir er með Executive MBA meistaragráðu í stjórnun, stefnumótun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í mannfræði með áherslu á atferlishagfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig sótt sér frekari þekkingu og símenntun á sviði markaðsfræða og verkefnastjórnunar, meðal annars í gegnum námskeið og diplómur.