Vefur Kópavogs tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna

Bæjarskrifstofa Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1
Bæjarskrifstofa Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1

Nýr vefur Kópavogsbæjar er tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokki opinberra vefja. Vefurinn er tilnefndur ásamt vef Hafnarfjarðar, Einkaleyfastofu, Íslandsstofu og Veitna. 

Verðlaunin verða afhent 27. janúar.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Veitt eru verðlaun í ellefu flokkum. Tilnefningar má skoða hér.