Vegagerðin malbikar Arnarnesveg við Salaskóla

Malbiksframkvæmd 15. sept.
Malbiksframkvæmd 15. sept.

Miðvikudaginn 15. september 9:00-15:00 stefnir Vegagerðin á að malbika hringtorg sunnan við Salaskóla og 170 metra austur Arnarnesveg ef veður leyfir. Lokað verður fyrir umferð á Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi við Salaveg og er vegfarendum bent á hjáleið um Salaveg.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.