Vel heppnaðir kynningarfundir

Leikskólar í Kópavogi starfa eftir námskrá sem spannar alla þætti í námi barnanna.
Leikskólar í Kópavogi starfa eftir námskrá sem spannar alla þætti í námi barnanna.

Foreldrum barna í Kópavogi sem eru að hefja leikskólagöngu í haust var í liðinni viku boðið til fræðslu um líf og nám ungra barna í leikskóla.  Á fundunum er farið yfir skipulag leikskólanna, kennslu, útiveru, mataræði og helstu áherslur leikskóla í Kópavogi.  Góð mæting var á fundina og foreldrar ánægðir með framtakið.  Þetta er í þriðja sinn sem svona fundir eru haldnir en það er leikskóladeild Kópavogsbæjar sem skipuleggur þá.

Í vor og haust munu börn, fædd 2016 og fyrri part árs 2017 hefja leikskólagöngu sína í leikskólum Kópavogs.  Undanfarið hafa litið dagsins ljós rannsóknir og skrif um líf og þroska yngstu þegnanna sem sýna með óyggjandi hætti að fyrstu árin skipta verulegu máli fyrir velferð þeirra.
 
Menntasvið Kópavogsbæjar og leikskólar bæjarins hafa tekið höndum saman til þess að þetta mikilvæga tímabil í lífi barna og foreldra þeirra takist sem best.