Velferðarsvið Kópavogsbæjar hefur sett á laggirnar fósturteymi barnaverndarþjónustu.
Á 17. fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar var kynnt ákvörðun um að setja á laggirnar nýtt fósturteymi innan barnaverndarþjónustu Kópavogs. Um er að ræða mikilvægt og jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu þjónustu við börn í viðkvæmri stöðu og þá aðila sem annast þau. Með breytingunum er markmiðið að styrkja faglega eftirfylgd, stuðning og samfellu enn frekar í þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna.
“Þetta voru tímabærar breytingar sem hafa það að markmiði að efla stuðning, eftirlit og þjónustu við börn sem eru vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga, sem og stuðning við fósturforeldra sem er gríðarlega mikilvægur” segir Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs.
Barnaverndarþjónusta Kópavogs sinnir umfangsmiklu og sérhæfðu starfi þar sem unnið er að vernd og stuðningi við börn og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Á síðustu árum hafa barnaverndarmál orðið flóknari og umfangsmeiri, samhliða auknu álagi og sífellt fjölþættari stuðningsþörfum barna og fjölskyldna. Árið 2025 bárust barnaverndarþjónustunni 1.810 tilkynningar vegna 799 barna og að jafnaði eru um 330–340 mál til vinnslu hverju sinni. Af þeim eru um 66 börn vistuð utan heimilis.
Nýja fósturteymið mun sérhæfa sig í málefnum barna sem eru í fóstri eða annarri vistun utan heimilis og sinna eftirfylgd, stuðningi og eftirliti með þeim úrræðum. Þá verður einnig lögð sérstök áhersla á stuðning og ráðgjöf til fósturforeldra. Fósturteymið verður skipað tveimur félagsráðgjöfum undir leiðsögn teymisstjóra meðferðarteymis. Með breytingunum verða starfandi þrjú teymi innan barnaverndarþjónustu Kópavogs; könnunarteymi, meðferðarteymi og nýtt fósturteymi.
Með stofnun teymisins er markmiðið að tryggja enn betri samfellu, öryggi og faglega umgjörð í þjónustu við viðkvæmustu börn barnaverndarþjónustunnar. Jafnframt er lögð áhersla á að styrkja stuðning við fósturforeldra sem gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna sem þurfa að dvelja utan heimilis.
Gert er ráð fyrir að fósturteymið taki til starfa eigi síðar en 1. september nk.