Viltu fá jazz heim í stofu?

Björn Thoroddsen gítarleikari
Björn Thoroddsen gítarleikari

Í tilefni Jazz- og blúshátíðar Kópavogs mun Björn Thoroddsen gítarleikari bjóða íbúum bæjarins upp á stutta og stórskemmtilega stofutónleika föstudagskvöldið 3. október og laugardagskvöldið 4. október. Þeir sem vilja bjóða gestum heim og upplifa magnaðan gítarleik Bjössa heima í stofu þurfa einungis að senda tónleikaósk á netfangið: btmusicefh@gmail.com fyrir 26. september. 

Í umsókninni þarf að tilgreina nafn, heimilisfang, símanúmer og hvort óskað er eftir tónleikum 3. eða 4. október.

Um er að ræða ferna tónleika hvort kvöld og áætlaður tími á hverjum stað er um 20 mínútur. Fyrstu tónleikarnir hefjast klukkan átta og verða síðan á heila og hálfa tímanum. Síðustu tónleikunum lýkur klukkan 22.30. 

Stofutónleikar bjóða upp á mikla nánd milli tónlistarmanns og gesta og eru þannig afar skemmtileg upplifun. Fjöldi gesta á hverjum tónleikum ræðst af húsakosti.

Ef fleiri umsóknir um stofutónleika berast en fjöldi tónleika verður valið úr umsóknum meðal annars með það í huga að dreifa þeim um bæinn.

Stofutónleikarnir eru hluti af árlegri Jazz- og blúshátíð Kópavogs. Eins og fyrri ár munu listamenn í hæsta gæðaflokki stíga á stokk. 

Hátíðin kynnir stolt í fyrsta skipti á Íslandi, Icelandic All Star Jazzband, sem skipað er íslenskum jazzleikurum sem hlotið hafa víðarkenningu víða. Sveitina skipa: Sigurður Flosason (saxófónn) Tómas R. Einarsson, (kontrabassi) Einar Valur Scheving (trommur), Kjartan Valdemarsson (píanó) Björn Thoroddsen (gítar).

Þá verða tónleikar með Guitar Islandico laugardaginn 11. Október, en Guitar Islandicohefur gert garðinn frægan með skemmtilegum útsendingum á íslenskum þjóðlögum. Tríóið skipa Gunnar Þórðarson (gítar), Björn Thoroddsen (gítar) og Jón Rafnsson (Kontrabassi)

Jazz- og blúshátíð Kópavogs er sem fyrr styrkt af lista- og menningarráði en listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Björn Thoroddsen.

Dagskrá Jazz- og blúshátíðar 2014

Föstudagurinn  3. okt  kl 20:30 -22:30   Stofutónleikar

Laugardagurinn 4 okt heimahús kl 20:30 -22:30   Stofutónleikar

Mánudagurinn 6 okt  kl 16:30 Gullsmárinn  Svavar Knútur  

Þriðjudagur 7 okt  kl 10:00 Snælandsskóli  tónleikar fyrir alla nemendur skólans

Fimmtudagurinn  9. okt  kl 20:00  Molinn  Djamm með unga fólkinu. Allir mæta  hljóðfæri og hlutirnir gerast

Föstudagurinn  10. okt  kl 20:00  Salurinn   Guitar Islancio

Laugardagurinn 11. okt kl 20:00 Salurinn  Icelandic allstar Jazzband