Vinnuskólinn fær Grænfánann

Vinnuskóli Kópavogs fær Grænfánann afhentan.
Vinnuskóli Kópavogs fær Grænfánann afhentan.

Vinnuskóli Kópavogs Grænfánann afhentan í fjórða sinn í blíðu en afar blautu veðri við höfuðstöðvar skólans að Fífuhvammi 20. Það var Caitlin Wilson verkefnastjóri Landverndar sem afhenti fánann við mikla gleði viðstaddra.

Nemendum skólans var boðið í Fífuhvamminn og mættu skólar úr efri byggðum að sjálfsögðu með strætó. Skemmtilegir leikir voru fyrir krakkana á borð við limbó, brennibolta og gámaspark. Mikil gleði ríkti í viðburðinum sem lauk með því að boðið var upp á grillaðar pylsur.