Vinnuskólinn opnar fyrir umsóknir

Sigurjón Emil, Ísak Dan, Audrius og Runólfur Bjarki í Vinnuskólanum í Kópavogi sumarið 2014.
Sigurjón Emil, Ísak Dan, Audrius og Runólfur Bjarki í Vinnuskólanum í Kópavogi sumarið 2014.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Kópavogs. Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og verða fjórtán til sautján ára á árinu fá vinnu í Vinnuskólanum. Boðið er upp á þá nýbreytni að þessu sinni, til hagræðingar fyrir nemendur, að allir geta valið sér vinnutímabil. Umsóknarfrestur er til 5. maí.

Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum í elstu bekkjum grunnskóla störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði. 

Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum. 900 nemendur tóku þátt í vinnuskólanum síðastliðið sumar.

Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Þeim er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Skólinn er þó ekki einungis vinna heldur er þar líka félagslíf, eins og í öðrum skólum.

Nánari upplýsingar www.kopavogur.is/vinnuskoli og á fésbókarsíðu Vinnuskólans undir heitinu Vinnuskóli Kópavogs þar sem allar tilkynningar sumarsins koma til með að birtast.

Forstöðumaður Vinnuskólans er Svavar Ó. Pétursson.

Smelltu hér til að sækja um í Vinnuskóla Kópavogs.