Vorhreinsun í Kópavogi

Vorhreinsun í Kópavogi.
Vorhreinsun í Kópavogi.

Kópavogsbúar eru hvattir til að hreinsa lóðir og nærumhverfi þegar vorhreinsun bæjarins stendur yfir.  Hreinsun á garðaúrgangi stendur yfir frá 29. apríl til 15. maí.  Þá verða starfsmenn bæjarins á ferðinni og hirða garðúrgang sem liggur við lóðarmörk.

Kópavogsbær tekur einnig þátt í stóra plokkdeginum 28. apríl sem fram fer á öllu höfuðborgarsvæðinu og víðar. Í honum er fólk hvatt til að tína rusl, plast og pappa og er sjónum sérstaklega beint að Reykjanesbrautinni, Vesturlandsveginum og Suðurlandsveg. Í Kópavogi verður ræst frá bílastæði Smáralindar.

Hreinsun á garðaúrgangi fer fram eftirfarandi daga í hverfum bæjarins.

  • Kársnes og Digranes 29.apríl-8.maí.
  • Smára-,Linda- og Salahverfi 9.-13.maí.
  • Kóra- og Vatnsendahverfi 11.-15.maí.


Íbúar athugið:

Garðaúrgang skal setja utan við lóðarmörk í pokum, greinaafkippur skal binda í knippi. Óheimilt er að flytja lausan jarðveg út fyrir lóðarmörk og verður slíkt fjarlægt á kostnað lóðarhafa. Ekki verður fjarlægt rusl af byggingarlóðum. Íbúar þurfa sjálfi að koma spilliefnum í endurvinnslustöð. Einnig timbri, málmum og öðrum úrgang.