Álagning fasteignagjalda

Álagning fasteignagjalda 2021
Álagning fasteignagjalda 2021

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til september. Alls eru 8 gjalddagar.


Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.


Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd fyrir 17. febrúar 2021. Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130–26–74, kt. 700169–3759. Athugið að ef ekki er unnt að millifæra er einungis er tekið við debetkorti.


Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð. Miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk í framtali ársins 2020. 


100% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 5.435.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur allt að 6.945.000 krónur.
75% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 5.435.001–5.525.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 6.945.001–7.307.000 krónur.
50% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.525.001–5.616.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.307.001–7.669.000 krónur.
25% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.616.001–5.673.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.669.001–8.031.000 krónur.

Vinsamlegast athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar heldur verður einungis stofnuð krafa í heimabanka með sama hætti og áður. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu. Hægt verður að panta og afpanta seðla með því að senda tölvupóst á netfangið thjonustuver@kopavogur.is.


Ekki verða sendir út álagningarseðlar á pappírsformi en hægt er að nálgast nýjustu álagningarseðla á island.is og í Þjónustugátt Kópavogsbæjar á vefsíðu bæjarins www.kopavogur.is


Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 441 0000 og fyrirspurnir má senda á netfangið: thjonustuver@kopavogur.is