Auglýst eftir listviðburðum á Kópavogsdögum

Barnatónleikar undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.
Barnatónleikar undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir listamönnum, hópum eða einstaklingum, til að vera með listviðburði á Kópavogsdögum, menningarhátíð Kópavogsbæjar. Að þessu sinni fara Kópavogsdagar fram 8. til 11. maí 2014 og verða þá haldnir í ellefta sinn. Umsóknarfrestur rennur út 14. febrúar. 

Hægt er að sækja um upphæð að hámarki 200 þúsund krónur en með  umsókn þarf að fylgja kostnaðar- og launaáætlun. Einnig þarf nákvæma lýsingu á viðburðinum og hvar og hvenær hann eigi að fara fram.

Listviðburðurinn þarf að auðga menningarlífið í bænum á Kópavogsdögum. Frítt þarf að vera á viðburðinn. 

Listamenn eru hvattir til að sækja um og sýna list sína á menningarhátíðinni. Viðburðurinn getur verið undir berum himni, við menningarhúsin á Borgarholtinu, inni í verslun eða bara hvar sem er. Aðalatriðið er að Kópavogsbúar hafi tækifæri til að njóta hans.

Fái umsóknin brautargengi mun Kópavogsbær sjá um að auglýsa viðburðinn.

Umsóknareyðublöð fást á vef Kópavogsbæjar. 

Umsóknum skal skila til: Lista- og menningarráð, Fannborg 2, 200 Kópavogur eða á netfangið: arnaschram@kopavogur.is.

Lista- og menningarráð metur umsóknir með hliðsjón af tilgangi  Kópavogsdaga.