Emma Dís vann söngkeppni Félkó

Aldís María Sigurvinsdóttir, Emma Dís Tómasdóttir og Vanessa Rúnarsdóttir
Aldís María Sigurvinsdóttir, Emma Dís Tómasdóttir og Vanessa Rúnarsdóttir

Árleg söngkeppni Félkó var haldin í Salnum í gær og var það Emma Dís Tómasdóttir úr félagsmiðstöðuinni Dimmu sem  stóð uppi sem sigurvegari.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávarpaði gesti ásamt því að veita verðlaun fyrir fyrsta sætið, en henni til aðstoðar voru Hanna Carla Jóhannsdóttir formaður menntaráðs og Embla Rún Pétursdóttir, fulltrúi ungmennaráðs.

Keppnin var hin glæsilegasta og hæfileikar unglinganna gerðu dómnefndinni erfitt fyrir þegar kom að því að veita verðlaun fyrir efstu þrjú sætin. 

Fyrsta sætið hreppti Emma Dís Tómasdóttir úr félagsmiðstöðinni Dimmu, í öðru sæti var Aldís María Sigurvinsdóttir úr félagsmiðstöðinni Fönix og í þriðja sæti var Vanessa Rúnarsdóttir úr félagsmiðstöðinni Kúlunni. Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að sjá þær á stóra sviðinu í maí.

Þær munu allar taka þátt í söngkeppni Samfés sem sýnd verður á RÚV í vor.