Fjölmenningardagur í Smáraskóla

Frá fjölmenningardegi í Smáraskóla 2014.
Frá fjölmenningardegi í Smáraskóla 2014.

Fjölmenningardagur verður haldinn í Smáraskóla 16. maí frá kl. 11 til 13 og eru allir hjartanlega velkomnir.  Markmiðið er að stuðla að umburðarlyndi og fordómaleysi. Þetta er í annað sinn sem Smáraskóli heldur fjölmenningardag en að þessu sinni er hann tileinkaður hinum alþjóðlega degi UNESCO um fjölmenningarlega fjölbreytni. Foreldrar og börn með erlendan bakgrunn verða með bása í skólanum þar sem í boði verður matur og menning frá ýmsum þjóð-löndum. Fólk er hvatt til að koma í þjóðbúningi.

 Dagskráin hefst kl. 11 með ávarpi bæjarstjóra, Ármanns Kr. Ólafssonar,  en að því búnu tekur Skólahljómsveit Kópavogs við og flytur nokkur lög. Kórar Smáraskóla taka einnig lagið, sýnt verður atriði úr söngleiknum Grease, sem verið er að setja upp innan veggja skólans, þátttakendur söngkeppni skólans flytja lög og gítarspil og skákmeistararnir Bárður og Björn bjóða fjöltefli.

Þá verður dansaður Vikivaki. Eldri borgarar verða með sölu á fallegu handverki.

Ragna K. Magnúsdóttir heldur utan um hátíðina í skólanum og segir hún að í alls 15 básum verði í boði matur og góðgæti frá m.a. Ítalíu, Búlgaríu, Litháen, Þýskalandi, Póllanda, Marokkó og Kólumbíu. Hún segir að dagurinn í fyrra hafi heppnast mjög vel og allir hafi verið jákvæðir og glaðir.

Um þessar mundir eru tíu ár frá því UNESCO samþykkti samning um að vernda og styðja við fjölbreytileg menningarleg tjáningarform og skapa skilyrði til þess að menningarsamfélög nái að dafna og eiga með sér frjáls samskipti. Hinum alþjóðlega degi um menningarlega fjölbreytni er ætlað að vekja athygli á því hversu fjölbreytt menning mannkyns er og minna á að aukinn skilningur á samspili ólíkra menningarheima eykur umburðarlyndi, félagslegt réttlæti og gagnkvæma virðingu menningarsamfélaga.

Fjölmenningardagur í Smáraskóla er hluti af Menningarhátíð i Kópavogi 16. maí.