Bláfjöll eru í landi Kópavogs.
Veðurstofa Íslands hefur unnið drög að hættumati á skíðasvæðunum í Bláfjöllum, sem tilheyrir Kópavogi, og Skálafelli, sem tilheyrir Reykjavík.
Í samræmi við reglugerð um hættumat vegna snjóðflóða á skíðasvæðunum nr. 636/2009 leggur Kópavogsbær drögin að hættumati hvað varðar Bláfjöll til kynningar. Drögin verða til kynningar í fjórar vikur.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband með að senda tölvupóst á skrifstofustjóra umhverfissviðs: gudrun.edda.finnbogadottir@kopavogur.is.
Ofanflóðahættumat fyrir Bláfjöll. Greinargerð.