Haustlitaganga í trjásafninu

Haustlitir í Kópavogi.
Haustlitir í Kópavogi.

Kópavogsbær og Garðyrkjufélag Íslands standa fyrir fræðslugöngu um trjásafnið í Meltungu í Kópavogi, austast í Fossvogsdal, þar sem áherslan verður á gróður að haustlagi. Gangan hefst kl 17:30 og lýkur um kl. 19:00.

Gangan hefst neðst í Kjarrhólma. Leiðsögumenn verða Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogs og Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélags Íslands.

Haustlitagangan er liður í samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Garðyrkjufélagsins.