Hluta Kársnesskóla lokað vegna myglu

Kársnesskóli.
Kársnesskóli.

Hluta Kársnesskóla, efri hæð vesturálmu aðalbyggingar, hefur verið lokað vegna myglu sem greindist í einni stofu í álmunni.

Svæðið hýsir nemendur í 1.bekk og hluta 3.bekkjar. Nemendum hefur verið komið fyrir annars staðar í skólanum, tímabundið, og er stefnt að því að lagfæringum verði lokið í lok desember.

Forsaga málsins er að á haustdögum varð starfsfólk vart við að loftgæði voru ekki góð á efri hæð í vesturálmu aðalbyggingar skólans. Brugðist var við með því að mæla loftgæði og taka sýni úr gluggum og fleiri stöðum til að kanna hvort um myglu gæti verið að ræða.

Niðurstöður gáfu til kynna að grípa þyrfti til aðgerða. Eitt sýni af fjórum sýndi að um myglusvepp var að ræða. Til að gæta varúðar hefur þegar verið brugðist við og vesturgangi lokað sem fyrr segir. Framkvæmdir hefjast eins fljótt auðið er en skipt verður um gluggasyllur, klæðningar og fleira.

Kársnesskóli stendur við Vallargerði. Í honum eru 660 börn.