Jákvæðar horfur í Kópavogi

Fannborg 2
Fannborg 2

Horfur í Kópavogi uppfærast úr stöðugum í jákvæðar í nýju lánshæfismati Reitunar. Lánshæfi Kópavogs helst óbreytt en Reitun spáir hækkun á lánshæfismati í kjölfar ársuppgjörs bæjarfélagsins, ef ekkert óvænt kemur fram.

 Í matinu segir að breytingin í horfunum sé tilkomin vegna vísbendinga um áframhaldandi styrkingu efnahags sveitarfélagsins, góðrar arðsemi, eftirspurnar eftir lóðum og jákvæðum horfum í efnahagsmálum.

„Það eru góðar fréttir fyrir bæjarbúa að horfur séu góðar í lánshæfi bæjarins og að það stefni í að lánshæfismatið hækki. Betra lánshæfismat skilar sér í betri vaxtakjörum og lægri útgjöldum fyrir bæinn, það njóta allir góðs af því. Undanfarin ár hefur lánshæfismatið hækkað sem er afrakstur ábyrgra fjárhagsáætlana sem hefur verið fylgt vel eftir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.

Bent er á að þrátt fyrir jákvæðar horfur þá þurfti sveitarfélagið áfram að gæta aðhalds í kostnaði og fjárfestingum þannig að skuldahlutfall bæjarins haldi áfram að lækka.

Lánshæfi Kópavogs er nú i.A2 en það hækkaði um tvo flokka á síðasta ári, í i.A2 úr i.BBB1.

Lánshæfismat Reitunar má lesa hér.