Kosið á milli 100 hugmynda í Kópavogi

Börn að leik í leiktækjum á Rútstúni sem sett voru upp að lokinni íbúakosningu 2016.
Börn að leik í leiktækjum á Rútstúni sem sett voru upp að lokinni íbúakosningu 2016.

Kosning er hafin í íbúaverkefninu Okkar Kópavogur. Alls eru 100 hugmyndir í kosningu, 20 í hverju hverfi. Kosningin er rafræn og geta íbúar Kópavogs tekið þátt. Hugmyndirnar eru af mjög fjölbreyttum toga og kosta frá 1 til 25 milljóna í framkvæmd. Hverfunum hefur verið ráðstafað fé í hlutfalli við fjölda íbúa en alls verður 200 milljónum varið til framkvæmda verkefnanna.

Smelltu hér til að kjósa

„Ég hvet íbúa Kópavogs til að taka þátt í kosningunni, taka þannig þátt í ráðstöfun fjármuna sveitafélagsins og hafa bein áhrif á umhverfi sitt. Verkefni íbúa úr síðustu kosningu hafa sannarlega sett svip sinn á bæinn  segir Ármann Kr. Ólafson bæjarstjóri.

Kosning stendur yfir frá 25. janúar til 5. febrúar. Hugmyndasöfnun verkefnisins fór fram í haust, bæði á vef verkefnisins og íbúafundum. Með verkefninu Okkar Kópavogur er verið að efla íbúalýðræði í bænum og auka samráð íbúa og bæjaryfirvalda.

 „Okkar Kópavogur er íbúalýðræði í verki, það eru mörg frábær verkefni í kosningu, nú er það íbúanna að velja og forgangsraða. Það var góð þátttaka síðast og við hvetjum alla til að taka þátt þannig að hún verði enn betri núna,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs.

Flest verkefnin sem nú eru í kosningu snúa að útivistarsvæðum og leik- og grunnskólalóðum en einnig er kosið um umferðar- og öryggismál, stíga- og gangstéttar og fleira.

Þetta er í annað sinn sem íbúar kjósa á milli hugmynda og forgangsraða þannig verkefnum sveitarfélagsins. Meðal þess sem íbúar völdu 2016 voru þrektæki í Fossvogs- og Kópavogsdal, leiktæki á Rútstúni og mínígolf í Guðmundarlundi.

Íbúar Kópavogs, 16 ára og eldri geta tekið þátt í kosningunni. Velja þarf eitt hverfi til að kjósa í en þátttakendur þurfa ekki að velja hverfi eftir búsetu. Þess má geta að nú er hægt að gefa hugmynd tvöfalt vægi með því að gefa henni hjarta.

Rafrænn kjörstaður verður á Bókasafni Kópavogs og í þjónustuveri bæjarskrifstofanna á meðan á kosningu stendur. Þar verður hægt að fá aðgang að tölvum og aðstoð. Þjónustan er veitt á opnunartíma.

Framkvæmd verkefna hefst í vor og stendur yfir í ár og á næsta ári.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.