Ljóðstafur Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur ár hvert.
Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur ár hvert.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að taka þátt en ljóðið má ekki hafa birst áður.
Ljóði skal skilað í fjórum eintökum og skal hvert eintak merkt dulnefni. Með fjórritinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefni skáldsins sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins.

Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum eytt. Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum föstudaginn 21. janúar 2022 við hátíðlega athöfn í Salnum en þá verða liðin 20 ár síðan Ljóðstafurinn var fyrst veittur.

Nánari upplýsingar: meko@kopavogur.is

SKILAFRESTUR Í KEPPNINA ER TIL OG MEÐ 5. NÓVEMBER 2021. Utanáskrift umslags er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Menning í Kópavogi
Digranesvegi 1
200 Kópavogur

Nánar