Næturstrætó snýr aftur

Næturstrætó hefur göngu sína á ný.
Næturstrætó hefur göngu sína á ný.

7 næturleiðir á vegum Strætó munu aka úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags.

Næturstrætó hefur akstur á aðfaranótt laugardags 9. júlí.

Leið 101 stoppar í Hamraborg á leið sinni í Hafnarfjörð. Leið 102 ekur úr miðbænum, um Kópavoginn og endar í Ögurhvarfi.

Fyrirkomulag er með þeim hætti að aðeins er ahægt að taka næturstrætó í átt frá miðbænum, ekki til baka. Leiðir byrja akstur annaðhvort á biðstöðinni Lækjartorg B eða á Hlemmi.

Vagnar aka ekki samkvæmt hefðbundinni tímatöflu, brottfarartími úr miðbænum er birtur og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna.

Viðskiptavinum sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klappappinu, Strætóappinu eða á strætó.is.